Þessi auka kíló eru alltaf til vandræða fyrir suma, og sumir hafa ekkert fyrir þessu og vita ekki hvað það er að hafa þessi blessuðu auka kíló!
Ég er búin að komast að því að það er ekkert mál að ná auka kílóunum af en annað að halda þeim frá manni til lengdar...
Þarna í blaðinu Vikunni náði ég á 2 árum 40 kg af mér og þá búin að eiga öll mín þrjú börn sem ég át fyrir tvo alla meðgöngurnar svo já náið þeim af á 2 árum en svo hef ég rokkað upp og niður ár eftir ár, ástæðan einföld "ég leifði mér að vera TIL"
Búin að vera svo dugleg að ég átti það inni að leifa mér smá sukku en það er hinn mesti misskilningur sem ég hef á ævinni gert því þá hoppa þau öll auka kílóin á mann til baka og á engum tíma satt að segja eða mér fannst það!
En hvað er þá málið fyrir okkur sem eigum auðvelt með að fitna aftur?
Jú það er svo ósköp einfalt þegar þú veist það og finnur í eigin skinni, og það er að vera alltaf á tánum og eiga bara einn nammi dag.... og velja bara eitthvað eitt þann daginn ekki nammi, sukkmat og jafnvel bakkelsi. Eða vera í jafnvægi með matinn sinn og ekki einhverjar öfgar eða missa sig í gleðinni eins og einhver sagði!
Ég held stundum að ég hafi prufað alla kúra sem eru til og get sagt ykkur hér að einginn þeirra virkaði til lengri tíma, gekk vel fyrst svo ekkert því ég sprakk og datt í það ef það má segja það.
Í dag veit ég að minn skjaldkirtill er dáinn og því mín brennsla hægari en margra annara, en það er bara verkefni sem ég vinn enn í því gott að borað og leifa sér....
Annað þessi blessaði breytinar aldur setur pínu strik í reikninginn og er mitt nýjasta verkefni, en ég mun ekki gefast upp heldur halda mínu tempói og já njóta ferðalagsins sem og hindrununum sem á vegi mínum verða.
Við megum alvega vera til og njóta en líka fóðra líkaman okkar með hollustu sem er mjög bragð góð og veitir miklu meiri vellíðan er nammi og bakkelsi eða skyndibitamatur.
Og veistu....allt hægt ef viljinn er fyrir hendi, lærðu að lifa með þínum líkama og virða hans veikleika. Njóta og nokkur auka kíló drepa engan!
Ein sem talar frá hjartanu og skilur þig sem átt aukakílóin.
Er til staðar fyrir þig ef þig vantar aðstoð með þín auka kíló!
Comments