Um mig
Ég er 50 ára Njarðvikingur og hef verið í líkamsræktinni í 28 ár, átti og rak líkamsræktatstöðina Perluna i 12 ár. Hef gaman af öllu sem tengist heilsunni og farið á mörg námskeið tengd heilsu og líkamsrækt, stefni sjálf á að vera 98 ára og enn í ræktinni.
Þegar ég eignaðist Perluna 1999 lærði ég bæði þolfimikennaran og einkaþjálfarann, síðar lærði ég einnig 4 Les Mills kerfi Body Pump, Body Jam, Body Combat og Body Attach sem ég kenndi í Perlunni. Ég er menntuð spinning kennari, búin með lífeðlisfræði í FSS, Hatha Jóganám hjá Guðjóni Bergman og einni Pump FX námskeið. Ég fór mörg ár til Blackpool í Bretlandi á ráðstefnur fyrir líkamsrækt. Ég er einnig spinning kennari hjá Fusion.
Ég hef mjög gaman að hjálpa og kenna fólki, er einnig með góða reynslu eftir þessi 28 ár. Ég hryggbrotnaði 17 ára, líka er ég með vanvirkan skjaldkirtil og er ég búin að kynna mér mikið bæði um bakmeiðsli og skjaldkirtil og prufa það á sjálfri mér.
Ég tel mig getað hjálpað þér og með frábærum árangri. Sendu mér línu ef þú vilt fá frekar upplýsingar